Afkomuvald

Ég vil amk. að sett verði sérstök lífsviðurværistrygging á sérstakan kafla í stjórnarskrána.

Ég hef sérstakan áhuga á þessu máli og vil vinna sérstaklega að þeim kafla verði ég kjörinn!

Ég hef hinsvegar mikinn áhuga á að almenningur geti fengið að hafa sérstök áhrif með slíku valdi sem ég nefni hér fyrir neðan!

Hvað er það?

Hugsunin væri sú að sett yrði sérstök stjórnsýslufærsla á stjórnarskrá sem snýst um að almenningur fengi að kjósa sér sérstakt vald inn í ríkistjórn sem væri ætlað til að tryggja afkomu fólks.

Snýst um að passa sérstaklega upp á að tekjur séu nægar og enginn fari í örbigð eða í erfiðar stöður með skuldir sínar. Að laun séu næg og dugi fyrir afkomu. Snýst einnig um að tryggja það að láglaunafólk, öryrkjar og aldraðir lendi ekki í sömu aðstæðum við hver einustu fjárlög að tekjur þeirra séu lækkaðar.

EN! AfkomuValdið verður að koma fá fólkinu!

Þetta mundi vera sérstakur kafli þar sem er skráð hvernig þetta vald virki.

Valdhafinn (kosinn af almenningi) sér um að koma með athugasemdir og hugmyndir frá fólki og bera þær undir ríkistjórn sem og að passa upp á að aðgerðir ríkistjórnar séu innan marka „afkomuvaldsins“