Forsíðuefni

Afhverju er ég að bjóða mig fram?

Til þess eru margar ástæður.

Þrátt fyrir fötlun mína og allar aðgerðirnar hef ég alltaf haft trú á því og sérstakan tilgang með því að vinna úti hvað sem það kostar ef ég hefði þrek til þess. Þannig var ég oft að vinna við erfiðustu og lengstu störfin og lengstan vinnutímann. Alltaf með teygjusokk og svo seinna sérsmíðaða skó að auki í seinni tíð. Ég vil benda ykkur sem koma hér inn á heimasíðu mína að skoða nú endilega og meðal annars Um mig sem er hér hægt að velja hér hægra megin að ofan.

Eitt af mínu mottóum er að gefast aldrei upp, sama hvað á bjátar!


Það er einfaldlega komið að þessu framlagi mínu til þjóðarinnar verði ég kosinn!

Þrátt fyrir að starfa sem öryggisvörður tel ég mig hafa fullt erindi í þetta starf og góða getu til þess. Sem og margt og mikið til málana að leggja. Ég hef verið að lesa yfir stjórnarskrána sem og líka önnur lög og greinar varðandi stjórnarskrármálefni. Verið ötull að mæta á  alla fundi til að kynna mér allt sem ég get um málin.

Ég er að vinna að minni eigin stjórnarskrá meðfram mínu framboði og mun ætla mér að vera algjörlega tilbúinn með hana (með mínum áherzlum og hugmyndun) þegar að stjórnlagaþingið tekur til starfa. Verði ég kjörinn á þingið.

***********************

Gott fólk.

Ég er nú tilbúinn með nýtt kynningarmyndband.

Í þetta skiptið var það tekið upp hjá stjórnarskrárfélaginu. Þakka ég Þórði Grétarsyni og Guðmundi Ragnari Guðmundssyni hjá stjórnarskrárfélaginu kærlega fyrir aðstoð þeirra til að þetta myndband varð til.

Gott fólk.

Ég er nú tilbúinn með nýtt kynningarmyndband.

Myndband þetta (1.49 min.) var unnið heima með einfaldri Videó upptökuvél. Notast var við loftljós og enga lampa. Ég fékka hjálp frá frænda mínum við upptökuna og öðrum frænda mínum við að breyta því úr MOD skrá í MP4 skrá.

Ég biðst velvirðingar á að óvart datt orðið GÓÐU út við lesturinn af þessari setningu: Fullt af …. fólki.

Átti því að vera: Fullt af GÓÐU fólki.

Hér er sv myndbandið sem er 1.49 min að lengd:


___________________________

Hér eru svo linkar á aðrar síður mínar:

Morgunblaðsblogg:

http:/hreinn23.blog.is/hreinn23/

Facebook framboðssíðan:

http://www.facebook.com/home.php?#!/pages/Gudna-frambod-til-stjornlagabings/114590275268261

____________________________

Previous Older Entries